26.6.2008 | 18:38
Farinn, fluttur, bless
Fyrir um það bil einu og hálfu ári síðan flutti ég mig alfarið hingað yfir eftir að hafa verið með blogg á blogspot í nokkuð langan tíma. Það var fyrst og fremst útaf því að ég var farin að tengja blogg við fréttir.
Mér hefur núna í langan tíma fundist þetta moggabloggsdæmi kjánalegt. Stærsta bloggvæðingin varð eftir að þetta var stofnað og í kjölfarið hefur myndast 'bloggsamfélag' sem er jafn aulaleg hugmynd og samfélagið sjálft er fordómafullt og þröngsýnt. Það eru vissulega góð blogg inn á milli en alltof margir nota bloggið sem ílát fyrir eigin fordóma, leiðindi og rörsýni á heiminn og átta sig engan vegin á því að orðum rituðum á blogg fylgir ábyrgð. Svo er líka bara alltof mikið af leiðinlegum bloggum!
Ég tékkaði þess vegna á því hvort að gamla bloggið mitt væri ekki í lagi. Svo er og því er ég alfarin þangað.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
5.6.2008 | 23:37
Major í góðum gír
John Major, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands skrifar flotta grein í Daily Times af tilefni þess að Verkamannaflokkurinn í Bretlandi ætlar að setja lög sem heimila lögregluyfirvöldum að halda mönnum í gæsluvarðhaldi í 42 daga áður en ákæra er gefin út. Hann er ekki hrifin af þessu, telur þetta ganga gróflega á réttindi borgarana og vill enfremur meina að þetta geti haft þveröfug áhrif við það sem Brown og félagar vona. Í stað þess að þetta komi í veg fyrir hryðjuverk gæti þetta hvatt öfgamennina til dáða. Margt flott í þessari grein:
" The Government has been saying, in a catchy, misleading piece of spin: “If you have nothing to hide, you have nothing to fear.” This is a demagogue's trick. We do have something to fear - the total loss of privacy to an intrusive state with authoritarian tendencies"
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
17.5.2008 | 04:20
Merkilegt
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.5.2008 | 23:12
Biturð
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.5.2008 | 22:44
Stuð
Pússa. Pússa meira. Grunna. Pússa pínu meira. Sparsla (spartla?). Lakka. Dansa.
Ég dansa til að gleyma.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
3.5.2008 | 04:48
Myndarlegur maður
Mig langar annars að frumsýna tvær myndir hér. Þær eru úr náminu mínu. Báðar eru hluti af gjörningum, þó sitt hvorum. Svona er að vera að læra að vera leikskólakennari. Maður fær að gera gjörninga. Gjörið svo vel.
Jamm
Endirinn á hreingjörningi
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.5.2008 | 04:27
Að liðnum ammælisdegi
Þetta var mjög sérstakur afmælisdagur.
Ég þurfti t.d. að minna fjölskylduna mína á það að ég ætti afmæli klukkan hálf 11 í kvöld. Þetta hafði alveg farið framhjá þeim. Vinir mínir voru duglegri við þetta. Ég fékk sms frá sumum (sem eru algjörar dúllur), símtal frá einum (sem er nottla mesta dúllan) og Harpa var söm við sig og hafði víst reynt að óska mér til hamingju í gegnum MSN einhvern tíman rétt eftir miðnætti. Hún er nota bene sú manneskja fyrir utan mína nánustu fjölskyldu sem hefur munað best eftir afmælinu mínu seinustu ár. Halli nýtti ferðina með son sinn á leikskólann til að taka í spaðann á mér og kann ég honum þakkir fyrir það líka.
Svo voru það Facebook og Myspace skilaboðin.
Eru þau í alvörunni málið? Nú er ég ekki vanur að hafa samskipti við fólk sem ég tel vera í mínum vinahóp í gegnum þessar síður nema svona bara rétt til að kommenta á myndir og eitthvað í þeim dúr. Ég geri mér grein fyrir að báðar síður bjóða upp á notice fítus fyrir einmitt svona afmæli en mér finnst nú svona skemmtilegra að senda fólki sms hið minnsta.
Ekki misskilja mig mínir góðu vinir. Mér þykir vænt um að hafa fengið afmæliskveðju frá ykkur, sama hvaða form var á henni. Ég er bara að velta fyrir mér þessum networking síðum og tilganginum með þeim. Mér finnst þær ekki koma í staðinn fyrir önnur samskipti þegar um er að ræða fólk sem ég þekki og hef reglulega samskipti við. Ég sjálfur sendi afmæliskveðjur í gegnum þær þegar um er að ræða fólk sem ég er kannski ekki í reglulegum samskiptum við.
Ég geri mér fullkomna grein fyrir því að þetta blogg gæti virkað á marga eins og ég sé bæði bitur og vanþakklátur yfir því að engin hafi munað eftir afmælinu mínu. En það er reyndar ekki þannig. Ég hreinlega man ekki hvenær ég fékk seinasta jafn margar afmæliskveðjur. Og ég er þakklátur fyrir hverja eina og einustu.
Takk fyrir mig.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.5.2008 | 18:29
Magnað
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.4.2008 | 12:02
Síðan hvenær...
hefur kostað fyrir leikskólabörn og starfsmenn leikskóla í strætó? Áður en við fengum þessi kort (sem er reyndar orðið töluvert langt síðan) þá fengu leikskólarnir bara strætómiða, allavega í Kópavogi. Veit ekki til þess að það hafi þurft að borga fyrir þá.
En ég býst við að Strætó bs. noti öll tækifæri sem þeir fá til að ná sér í gott PR.
|
Frítt í strætó fyrir leikskólabörn og starfsfólk |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
27.4.2008 | 19:27
Almenningur
Á 2-3 tímum á föstudegi tókst nokkrum krökkum að safna saman næstum 200 manns til þess að 'mótmæla' hinu og þessu á miðjum fjölförnustu gatnamótum höfuðborgarinnar. Þetta var gert án þess að stærstu fréttavefmiðlar landsins birtu tilkynningar frá þeim.
Þessir krakkar fundu enga þörf hjá sér til þess að halda því fram að 'almenningur' væri með þeim í liði eða að þau berðust fyrir 'okkur'.
Á 2-3 tímum á sunnudegi tókst talsmanni atvinnu(rekenda)bílstjóra að safna saman 10-15 vinum sínum til þess að fara í mótmæla göngu alla leiðina frá Kringlunni og niður í miðbæ. Hann fékk birtar tilkynningar á bæði mbl.is og visi.is.
Hann var að berjast fyrir 'okkur' og er alveg viss um að 'almenningur' sé með sér í liði.
Ég sjálfur er að læra fyrir próf. Ég föndraði þessa kókþotu í svipuðum aðstæðum. Hún er til sönnunar þess að auglýsing Sorpu lýgur ekki, það er hægt að nýta notaðar dósir til að búa til þotur.
Þotan er með mér í liði.
|
Sturla: Ég berst fyrir ykkur |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)



birkire